Jazney Glitter De la gell.com

miðvikudagur, mars 30, 2005

Afríka

Jæja ætli maður sé ekki búinn að troða sér inná Guðrúnu greyið einu sinni enn. Þröstur og Guðrún voru að koma frá Afríku og eru búin að sofa síðan þau komu... En ég er búin að vorkenna mér svo mikið að hafa þurft að vera ein um páskana þannig ég ákvað að ég ætti það skilið að hitta þau og tala Íslensku.... Ég er búin að fá að heyra eina frábærustu ferðasögu sem ég hef heyrt, skoða skrautlegustu myndir og horfa á frábærar video myndir. Ég fór alveg að iða í skinninu vegna tilhugsun um ferðina okkar Sigga.

Fékk líka að gera skattskýrsluna mína hjá henni. Ligg núna upp í sófa með Guðrúnu og er að maximmæsa letina.

mánudagur, mars 28, 2005

Gledilega Páska

Vaknadi snemma í morgun, hress og kát ad vanda, las heila grein og skellti mér svo út ad skokka í hádeginu. Yndislegt vedur... var bara á hlírabol, hinsvegar er tad held ég bara ég sem finnst vera komid sumar, tví Danir eru flestir enntá í vetrarúlpunum og med trefla, enda horfdu flestir á mig eins og ég væri frá annarri plánetu.

Er núna uppi í skóla ad athuga póstinn minn tvi internetid er ekki komid enntá í lag heima. Og tad er tessvegna sem ég skrifa svona bjagada stafi.

Yndislegur dagur í gær. Fórum, vid krakkarnir sem búa med mér, nidur á strönd. Löbbudum svo strandveginn og skodudum verulega falleg hús og garda. Röltum svo inn í stóran gard og inn í Bakken... sem er nota bene Tivolí....átti tar skelfilega lífsreynslu í einu tækinu med Tommie, strákur sem býr med mér....

Tetta var alveg ferleggt. Málid er, eins og allir vita tá er ég mikid Tivolí fan....Elska ad fara i skemmtileg tæki og öskra úr mér líftóruna. Vid leytudum náttúrulega ad skelfilegasta tækinu og skelltum okkur, Tommie er nefnilega ad plana ad fara í fallhlífarstokk í sumar og vildi æfa sig... Tannig vid létum okkur gossa í tækid....og fyrst var tetta mjög gaman, Tækid rugladi mann gersamlega i kollinum tvi tad snerist í hringi, sem og var alltaf ad trufla tingdaraflid, tannig manni fannst madur alltaf ekki fylgja med líkamanum....tvi tækid for svo hratt.....

Allavega tetta var mjög fínt til ad byrja med.... rosa öskur og hlátur, en svo hélt tetta áfram og áfram og áfram og áfram..... Málid var nefnilega ad tad var engin röd nidri.... tannig tad var engin ástæda til tess ad stoppa fjárans tækid. Ég hélt ekki ad ég yrdi eldri.... á endanum var ég bara bún ad loka augunum og beid eftir ad tetta kláradist.... Ekkert lengur hrædd bara gersamlega búin ad fá nóg....

Ferlegt.... En fórum svo og fengum okkur ad borda og sátum úti i sólinni....

Tegar ég kom heim hámadi ég í mig restina af páskaegginu mínu og horfdi a sjónvarpid...

Jæja núna ætla ég ad fara ad læra meira.... Njótid dagsins....

fimmtudagur, mars 24, 2005

Úr sambandi

Greit.... Internetið er bilað heima hjá mér... alveg ferlegt...Maður má ekki fara í burtu lengur en í sólarhring og þegar maður kemur til baka þá er allt í fokki.

Fór með Birnu í skvísuleiðangur í Fields (verslunarmiðstöð) á miðvikudaginn eftir skóla hjá okkur. Spókuðum okkur um gangana og mátuðum eins og við værum í okkar síðasta verslunarleiðangri. Birna var barnlaus og á leið til Íslands daginn eftir, þannig henni vantaði stuðning við að versla... ekki hægt að koma alltaf með sömu gömlu fötin heim... maður verður nú að lúkka... og ég náttúrulega svo meðvirk að ég var henni feikilegur stuðningur.

Eftir að hafa svitnað við að máta ákváðum við skella okkur í ljós, sem nota bene er hægt að gera í verslunarmiðstöðinni og drifum okkur því með alla pokana og sveitt enni inn í lítinn þröngan klefa. Eftir að hafa grillað á okkur húðina í 6 mínútur trítluðum við okkur fram og ætluðum að yfirgefa bygginguna.... en því miður, í hita leiksins tíndi Birna litla bílastæðamiðanum.... Nú voru góð ráð dýr og við snérumst í hringi... þreyttar eftir verslunarleiðangur og sólböð. Á endanum fórum við inn í líkamsræktarsalinn sem er nota bene líka í þessari verslunarmiðstöð og eini staðurinn sem var ennþá opinn og spjölluðum við gaurinn.... útskýrðum stöðuna og hann var algjörlega dáleiddur af stóru stressuðuð augunum hennar Birnu, kom mér á óvart að hann hafi ekki beiði um símanúmerið. En til þess að gera langa sögu stutta... þá komumst við út úr bílastæðahúsinu og heim á leið.

Þar var ferðinni heitið upp í sófa... horft á sjónvarpið og drukkið kók og borðað popp..... Þegar klukkan nálgaðist miðnætti ákvað ég bara að krassa á sófanum nennti ekki að taka strætó svona seint. Við bökuðum vöfflur með ís og sultu, hámuðum þær í okkur, eða öllu heldur ég, enda verkjaði mig þvílíkt í magann... hefði mátt vita mín takmörk.... En nei ekki hún Jónína...

Er nefnilega að safna smá forða fyrir ferðina miklu... hef áhyggjur af því að horast svo þar að ég ákvað að reyna að éta eins mikið og mögulegt áður en ég legg af stað....Líta á björtu hliðarnar!!!!

Semsagt mætti beint í skólann eftir að hafa krassað á sófanum hjá Birnu, var í skólanum þar til fjögur. Þegar ég kom heim komst ég að því að Internetið er bilað og því er ég gersamlega sambandslaus við umheiminn um Páskana...ferlegt... ekki að fíla það....Krakkarnir sem búa með mér eru svo bæld... kunnu ekki við að kvarta yfir biluninni þegar þetta gerðist... og loksins þegar gribban í húsinu mætti á svæðið...(fyrir þá sem föttuðu það ekki, þá er það ég) þá var búið að loka öllu og allir farnir í Páskafrí.... TíPíSt þannig þið sem viljið hafa samband við mig... þið verðið bara að hringja......

sunnudagur, mars 20, 2005

Undur og stórmerki

Haldið þið ekki bara að hún Jónína Ykkar hafi farið út að skokka í dag.... Ótrúlegt en satt, og hafði bara gaman af.

Þegar ég var alveg að mygla við skrifborðið mitt eftir miklar spekulersjónir varðandi þessi blessuðu verkefni... Þá tók ég upp á þeirri vitleysu, að mér fyrst fannst, að fara út að skokka. Það er alveg afskaplega fallegur garður hérna rétt hjá húsinu mínu, og ég hef aldrei farið í hann. Þannig ég hoppaði í létt föt og smellti á mig íþróttaskónum og skokkaði af stað með tónlist í eyrunum, maður er náttúrulega í svo lélegu formi að maður eiginlega tekur eitt skref áfram og tvö afturábak. Hvað sem því nemur þá komst ég í garðinn og skokkaði þar í gegn.

Labbaði samt líka smá... því annan eins garð hef ég aldrei séð. Þetta er magnaður garður.... alveg ofsalega fallegur og risastór. Garðurinn var fullur af trjám, fallegum lækjum, svönum, dúfum og í honum miðjum var stór kastali. Það var eiginlega alveg ótrúlega gott að komast aðeina út úr stórborginni og finnast maður vera úti í náttúrunni þó svo að ég var stödd í miðri Kaupmannahöfn.

Ég sá hóp af fólki standa í kringum risastórt skrautlegt tré. Ég hélt að þetta væri einhver svona páskaundirbúningur en þegar ég kom nær tók ég eftir því að tréð var fullt af barna snuddum. Tréð var semsagt skreytt barnasnuddum sem voru flestar í poka með bréfi með. Þetta var alveg magnað.

Semsagt skokkaði samt fullt þó svo að ég var á fullu að dást að öllu... Kom svo heim og gerði æfingar og teijur... ótrúlegt en satt... trúi þessu ekki upp á mig, einveran í Kaupmannahöfn er greinilega ekki að gera mér gott... !!!

p.s. Partíið fór mjög vel fram og var frekar rólegt, sem betur fer!

föstudagur, mars 18, 2005

Partí

Loftið í íbúðinni er rafmagnað.... Trevor, strákur sem býr með mér, ákvað að hafa partí í kvöld.... Þannig sjáum til hvernig það fer... en ég tók ákvörðun um það að hafa herbergið mitt lokað á meðan liði er hérna... Langar ekki að fá skítuga útlendinga inn á rúmstokk hjá mér....

Þarf líka að vera active í stofunni til þess að passa upp á Turninn MiNN svo enginn steli honum (Sjá myndir).... ég ætla honum til íslands.....

Svo er bara að taka upp pískinn og vera tilbúin að henda liðinu út ef það hagar sér ekki!!!!

(Það á ekki eftir að standa í mér eftir góða reynslu í hestaferðunum sumarið '76)

Wich me luck....

fimmtudagur, mars 17, 2005

Keppnin ógurlega við Blómið

Rigning og rok....

Kannski fínt að spara góða veðrið þangað til að það er aðeins minna að gera í skólanum.... þá hefur maður allavega tíma til þess að njóta þess.... (Muna að líta á björtu hliðarnar)

Smá kenning... Því meira sem maður hefur að gera... samanber í skólanum, því meiri áhuga hefur maður á því að blogga.... Hef ekki haft svona mikið að gera síðan ég kom hingað og hef heldu ekki bloggað svona oft síðan sumarið 76.

Annars er ég búin að sitja inn í herberginu mínu síðan á mánudaginn... að gróa föst við stólinn.... með það markmið að ljúka þessum blessuðum verkefnum af.... allavega mínum parti....

Og viti menn... ég drakk heila flösku af vatni í gær og er hálfnuð með nýja flösku fyrir daginn í dag.

Hehe... ég er að sigra blómið.... það hefur ekkert í mig ef ég held þessari keyrslu áfram. Verð samt að muna að sofna ekki á verðinum :o)

Vá ég held að ég sé að missa vitið... ætla að fara á kaffihús með Ósk niðri á striki núna... dreifa huganum... kominn tími til

miðvikudagur, mars 16, 2005

Þurkur

Nýtt mission... drekka meira vatn...

komst að því í morgun að blómið mitt drekkur meira vatn en ég... Ég er með eina flösku til að vökva blómið mitt og svo flösku til að drekka úr sjálf... þær eru jafn stórar... þegar ég komst að því að blómið klárar fyrr vatnið heldur en ég fattaði ég að það er náttúrulega ekki í lagi að drekka eiginlega aldrei neitt.... og náttúrulega ekki í lagi að vera duglegri að vökva blómið en að vökva sjálfan sig...

Þannig missionið mitt er að reyna að drekka smá vatn.... Eina sem ég drakk í allan gærdag voru tveir litlir bollar af tei yfir allan daginn.... ekkert skrítið að maður sé dofinn....

Annars er skólinn rosalega athyglissjúkur... búin að vera að læra í allan dag og á ennþá langt í land......

Best að halda áfram...

þriðjudagur, mars 15, 2005

Perur með rjóma

Rigning og slabb... Ég misskildi greinilega, tók þessum góðviðrisdögum of hátíðlega... það er sko ekki komið vor í Kaupammahöfn.

Fór í skólann í dag... og eins og staðan er núna þá er ég að drukkna í verkefnum... verð á kafi þar til vikuna eftir páska, þá skila ég af mér tveim stórum verkefnum og fer í munnlegt próf. Svo hægist aðeins um hjá mér þar til í maí.

Skil ekkert í þessum prófessorum... hélt að þeir hefðu skilið, að ég er komin hingað til að læra á lífið en ekki til þess að læra á bókina... ætli ætli ég þurfi ekki að drulla mér til þess að gera bæði.

Eygló Súper gella var hjá mér um helgina. Hún kom hingað í heimsókn til Gerðar og Kjartans, en ég, mest uppáþrengjandi skvísan, náði auðvitað að troða mér með... Þau halda eflaust að ég eigi enga vini!!!

En við skemmtum okkur alveg konunglega bæði á Strikinu, HogM sem og á næturklúbbum Kaupmannahafnar.... við náðum jafnvel að skemmta okkur á McDonalds. Ég náði að hlægja það mikið að ég er ennþá með harðsperrur í magavöðvunum og verk í bros-vöðvunum í andlitinu. Ótrúlegt hvað það verður nú gaman þegar tveir torfumeðlimir í stuði hittast....Djöfull er maður nú skemmtilegur.... en svona þegar ég hugsa til baka... þá voru það aðallega ég og Eygló sem hlógum.... fólk var ekki alveg að skilja húmorinn okkar.... i wonder why!!!

Góð helgi sem endaði með lærdómi og rigningu.

Nú sit ég fyrir framan tölvuna... ætlaði að kaupa mér í matinn á fimmtudaginn... en ég er að þrjóskast við og gera tilraun hvað ég er dugleg við að búa mér til mat út engu.... og með því móti klára allan mat sem ég á. Semsagt ég sit hérna og snæði kvöldmatinn minn sem er nota bene.... niðursoðnar perur með hálf súrum rjóma (sem var þreyttur á laugardaginn) maður er alltaf að æfa magann...

p.s. (morgunmaturinn var pönnukaka með sultu og rjóma)


Þarf að drulla mér út í búð á morgunn.... því ég er búin með Nutellað mitt (súkkulaðismjörið)

laugardagur, mars 12, 2005

Smá Fréttir

Jæja nú eru hlutirnir komnir á hreint... Ég ætla að segja ykkur litla leyndarmálið mitt, okkar.... sem ég er reyndar búin að segja fullt af fólki, en hef ekki viljað gera það opinberlegt fyrr en allt var klappað og klárt... Ég er semsagt Ólétt...

What!!!!

Nei grín...!!!! Plataði ykkur

Nei nei... við og Siggi erum að fara ferðalag lífs okkar 26. ágúst næstkomandi... Flug frá London til Kúbu. Ætlum að stoppa þar í nokkra daga og fljúga svo til.....

Lima í Perú þar sem við ætlum við að skoða Inka slóðirnar og fara inn í Amazone. Eftir það ætlum við vonandi að fara til Bólivíu (La Paz), Chile (Santiago), Argentínu (Buenos Aires) og Brasilíu (Sao Paulo og Rio De Janero). Annars ætlum við samt bara að láta kylfu ráða kasti í Suður Ameríku og láta hlutina bara koma í ljós þegar við erum þar. Eina sem er ákveðið er að við fljúgum frá Santiago rétt rúmum tveim mánuðum seinna til......

Nýja Sjálands, eftir langt bakpokaferðalag í Suður Ameríku. Þar ætlum við inní siðmenninguna aftur og fara í heimsókn til Svans. Við verðum hjá honum í viku og ætlum að skoða okkur um með honum þar. Eftir það verður ferðinni svo heitið....

Getið tvisvar....

Til Ástralíunnar minnar. Þar ætlum við að vera í rúman mánuð.... Heimsækja allt fólkið mitt og skoða gamlar slóðir. Þaðan er ferðinni heitið í eyðimörkina, svo á austurströndina og endum svo endum við í Sydney því þar eigum við flug í 14 desember til......

Bangkok í Tælandi. Þar ætlum við kannski að vera eða jafnvel ætlum við að fljúga og sjá einhvern annan stað í Asíu eins og Vietnam eða Laos en við erum ekki alveg búin að ákveða það. Í Asíu ætlum við svo að versla allar jólagjafirnar og vera á fínu hóteli því það kostar ekki neitt að vera þar.

Að kvöldi 23. desember komum við svo aftur til Íslands vonandi reynslunni ríkari....

þriðjudagur, mars 08, 2005

Vor

Við Siggi áttum vægast sagt yndislega helgi hérna í Kaupmannahöfn. Sólin skein allan tímann en því miður var mikið frost og því mjög kalt. Nú er hann farinn og það er bergmál í herberginu mínu....

Við fórum í mat til Guðrúnar frænku hans Sigga, sem er reyndar núna á leiðinni til Afríku í Górilluferð, á fimmtudagskvöldinu. Á föstudeginum kíktum við í bæinn um daginn og svo út á lífið um kvöldið. Kristín og Erla Dögg voru að koma til Kaupmannahafnar til þess að hitta gamla vini og við mældum okkur mót við þær.

Eftir það var farið á rokkna djamm sem endaði með því að Siggi og Trevor (herbergisfélaginn minn) stútuðu 5 lítra bjór-Turni með dælu á 15 mínútum og stálu svo á endanum turninum af skemmtistaðnum með miklum tilþrifum. Ég hef sjaldan upplifað svona fyndið móment á ævinni.

Núna eigum við Trevor hinsvegar í forræðisdeilum yfir turninum, semsagt ég vil fá hann til Íslands eftir dvölina hérna en hann vill taka hann með sér til Hawaii. Sjáum til hvað setur en ég set myndir inn á síðuna, vonandi á morgun.

Á laugardeginum tókum við daginn snemma horfðum á fótboltaleik og gengum um Strikið. Á sunnudeginum átti Siggi afmæli og við elduðum okkur fínan kjúkling í hádegismat og drukkum rauðvín. Borðuðum afmælisköku í kaffitímanum þar sem allir sungu afmælissönginn fyrir Sigga á sínu tungumáli. Fórum svo út að borða á Nýhavn um kvöldið, röltum okkur svo heim með einu bjórstoppi.

Svo fór hann í gærmorgun með krakkana hennar Guðrúnar til Íslands. Við Guðrún sóðum á flugvellinum og vinkuðum báðar með grátstafina í kverkunum..... meðan fólkið í tollinum hristi hausinn yfir okkur. Kristín og Erla Dögg komu svo í heimsókn um kvöldið með strákahjörðina og við sátum á spjalli langt fram á kvöld.

En Í morgun gerðist eitthvað mjög undarlegt, hitinn fór upp fyrir frostmark og allt í einu fór að heyrast fuglasöngur. Ég hjólaði í skólann og mér var heitt... og ég þurfti ekki einu sinni að vera með vettlinga þetta er eitthvað sem ég hef ekki upplifað hérna áður. Það var eins og það væri búið að vekja garðyrkjumennina frá vetrarblundinum og þeir stóðu uppi í tröppum og klipptu trén og götusóparinn var farinn að sópa gangstéttina. Ég átti ekki til orð og hjólaði beint heim eftir skóla og ákvað að taka þátt í þessu vor æði í Kaupmannahöfn. Ég dreif mig út með sápu og bón og þreif dýrgripinn.

Ég er semsagt búin að þrífa hjólið og það er orðið rosa fínt tilbúið að takast á við saltminni daga.

fimmtudagur, mars 03, 2005

Hamingjusömust

Jæja loksins er komið að því... Hann Siggi minn kom til mín í morgun og það er hreint út sagt yndislegt. Ég fór út á flugvöll og sótti hann með blómvönd... sem voru í raun og veru handa sjálfri mér líka. Hann kom glaður í bragði á móti mér með fullan bakpoka af dóti fyrir mig og Guðrúnu en kom sjálfur bara með einar aukabuxur og peysu.

Hann situr sáttur núna með bjór í annarri og brosir allan hringinn....